Berglind Gudrun's profileLitli heimurinnBlogListsNetwork Tools Help

Berglind Gudrun Beinteinsdottir

Occupation
Location
February 25

Farin annarsstaðar

 
til að blogga. Kíki þið á bogh.bloggar.is
December 04

Skólinn búinn, prófin eftir

jæja þá er skólinn búinn og bara prófin eftir. Mér finnst ég nú vera ansi heppin því að ég er bara að fara í tvö próf. En þetta verður samt alveg nógu erfitt. Ég er annars mjög stolt af sjálfri mér akkúrat núna :) ég var að klára lokaskýrslu í eigindlegum rannsóknaraðferðum (ég veit, þetta hljómar hræðilega) svo að á morgun get ég farið að einbeita mér að því að lesa. Ég vona bara að ég nái þessum prófun og ég ætla að gera mitt allra besta til að ná þeim. Svona fyrir utan skólann er allt fínt að frétta, pabbi varð 75 ára í síðustu viku og það var haldið flott afmæli fyrir hann á laugardaginn. Það endaði því miður illa þar sem það virðist vera að nokkrir hafa fengið matareitrun, allavega höfum við Halli og Andri ekki lagst í rúmið. Svo að ég segi bara 7,9, 13. Jæja nóg um það, best að halda áfram að læra
kveðja Berglind
November 10

læra læra læra

Vá ég er búin að fá nóg af skólanum, það eru þrjár vikur eftir og ég á eftir að gera eina ritgerð í hóp  og svo á ég eftir að gera fullt af svona smá verkefnum, vááá hvað mig er farið að langa í smá pásu núna. Annars fyrir utan skólann er allt fínt að frétta ég hef eiginlega ekki séð Halla eða Andra í 2 vikur og ég man eiginlega ekki hvernig þeir líta út lengur. En í dag ætla ég að taka mér smá pásu. Ég verð bara því miður að fá aðeins að pústa, þetta háskóladæmi er of mikið, allir kennarar alveg á bakinu á manni að biðja mann að klára verkefni og að mæta í tíma. Ég held bara að maður verði að fara að hætta að sofa.. við Halli fengum reyndar að prófa það í vikunni því að Andri hefur ekki verið að sofa vel og hann var vakandi í nokkra tíma eina nóttina í vikunni og þá notaði ég bara tímann til að læra því að ég gat ekki sofið. Jæja nóg um það ég verð bara að hugsa þetta jákvætt það er lítið eftir af skólanum og svo koma jólin :) og þar sem ég er bara í tveimur prófum þá ætti ég að hafa aðeins meiri tíma en venjulega til að undirbúa jólin.
Kveðja
Berglind að drukkna
November 06

ja hérna hér

það er bara kominn nóvember, ég er ennþá að drukkna í skólanum og það virðist ekkert minnka í verkefnabúnkanum. Ég sit hérna í Odda og var að klára eitt verkefni og var að byrja eiginlega á tveimur í viðbót úfff. Ég get ekki beðið eftir því  að þessi önn verði búin. Þetta er búið að vera rosalegt. Það er annars fínt að frétta af okkur í Grafarvoginum, við ákváðum að fara út að borða á laugardagskvöldið því að við áttum gjafabréf á Grand hótel. Ég hef alveg farið á betri veitingastað, ég ætla nú ekki að telja upp allt það sem gerðist en þegar við mættum þá var ekki til borð fyrir okkur, sem sagt pöntun okkar hafði ekki komist til skila. Það gerðist síðan ýmislegt annað sem endaði með því að við fengum hvítvíni ð sem við pöntuðum frítt, ekki slæmt það :) Á meðan þessu stóð var Andri Már í pössum hjá ömmu sinni og afa og það var gott að fá smá pásu. Á sunnudaginn fengum við svo að sofa út :) og það var æðislegt.  Það lítur annars allt út fyrir það að ég fái ósk mína uppfyllta því að Andri hefur ekkert verið veikur núna í eina og hálfa viku, hann var reyndar með hita í gærkvöldi en það hefur sennilega verið því að hann er að fá síðustu tönnina. Það er best að hætta þessu bulli því ég þarf að koma mér af stað í strætó til að komast niður á Grand Hótel en ég er að fara gera verkefni um hótelið.
kveðja Berglind
October 28

Give me a break

Langt síðan síðast. Ég verð bara að viðurkenna að ég er ekki alltof góð í þessu blogg standi. Málið er að ég get ekki ákveðið mig hvort ég á að halda þessu áfram. Eina stundina þá langar mig að henda þessari síðu og byrja bara upp á nýtt á einhverri annarri. En jæja nóg um það þetta verður bara að vera barátta á milli mín og...uhmmmm.. mín hehehehe. Þá eru það fréttir það er nú svo sem ekki mikið fréttnæmt hérna á heimilinu nema hvað að hér eru búin að vera mikil veikindi síðustu tvær vikur. Og ég get alveg sagt ykkur að mig langar í smá pásu frá þeim. Þetta byrjaði þannig að fyrst voru Andri og Halli báðir veikir í einu, þetta var því miður akkúrat í verkefnavikunni í skólanum svo það var smá álag og ég varð bara að vera dugleg. Síðan urðu þeir góðir og þá fékk ég þetta í staðinn og missti þrjá daga úr skólanum og var næstum því búin að missa af námsferð. Síðan meðan ég var veik þá veikist Andri aftur !! það liðu bara einhverjir fimm dagar á milli Common !!! ég meina það. Og núna er þessi elska veikur og er búinn að vera með 40 stiga hita í tvo daga og í dag laugardag þá loksins fór hann niður í 39 stiga hita, ég vona bara svo innilega að hann lækki eitthvað á morgun. En þegar hann er búinn að jafna sig á þessum veikindum þá heimta ég.....já þá heimta ég að minnsta kosti tveggja vikna frí frá veikindum.
 
Mér finnst ég nefnilega ekkert komast áfram með skólann og ég veit ekki hvernig þessi önn fer, ég verð sennilega bara að treysta á guð og lukkuna. Á fimmtudaginn þá þurfti ég að fara frá litla stubbnum mínum til að fara í skólaferð um Suðurland. Ég komst ekki í ferðina fyrr en um kvöldið og ég var að koma heim í dag. Þessi ferð var alveg ágætt en mér fannst hún samt smá tilgangslaus þar sem ég fer í aðra svona svipaða ferð á næsta ári en hún er 5 dagar en ekki þrír. En ég komst lifandi frá henni og náði mér í smá þekkningu en við vorum að skoða nokkur ferðaþjónustu fyrirtæki á Suðurlandi og svona hvað þau séu að gera í ferðaþjónustu. Við vorum einnig að kynna okkur fyrirtæki sem hafa tekið upp á því að fara í Green Globe og það finnst mér mjög sniðugt framtak, en það snýst um ákveðna umhverfisvottun. Eins og er þá eru bara tvö fyrirtæki í dag með umhverfisvottun Green Globe og annað þeirra fórum við að heimsækja og það er ekkert smá sætt gistihús undir Eyjafjöllum. Umhverfisvottunin snýst um að þeir flokka allt rusl og þurfa að sýna Green Globe fram á vatnsnotkun og rafmagnsnotkun. Mér finnst þetta mjög sniðugt og það mættu fleiri fyrirtæki gera þetta því að þetta skapar þeim bara meiri viðskipti því að í dag þá eru til ferðamenn sem velja sér eingöngu hótel sem eru umhverfisvæn.
 
Jæja nóg um það, ég er farin að sofa, það er víst nóg að læra á morgun
 
No list items have been added yet.

Litli heimurinn